|
|
11.04.2009 18:08:42 / vvsb
Gleðilega páska kæru vinir, sendum súkkulaðiknús á línuna
»
21.03.2009 08:06:48 / vvsb
Go´dag
Aðlögun er búin að ganga lygilega vel hjá BV í vikunni og við vonum að það haldist og að það komi ekkert bakslag Honum finnst þetta bara spennandi og minnir konurnar sjálfur á ef þær gleyma einhverju t.d. þegar hann var að sofa í leikskólanum í fyrsta sinn og þá sagði hann; mig vantar bangsann minn og snuddunna bjargar sér þessi elska...Þeim finnst hann duglegur að tala og segjast vel skilja hann, sem er bara frábært. Það eru líka búnar að vera miklar framfarir undanfarið....en nú er hann að skipta mikið yfir í dönskuna hann tekur þetta svona til skiptis.
Viktoría missti framtönn í gær og er voða stolt af því, finnst hún loksins vera orðin stór Þau breytast svo hrikalega þegar þau missa framtennurnar...verða allt í einu svo fullorðin eitthvað Það er foreldraviðtal hjá henni í næstu viku og við erum spennt að heyra hvernig gengur...annars er hún bara mjög kát þessa dagana og við höldum að hún sé að komast yfir 6 ára gelgjuna Skapsveiflurnar eru ekki eins miklar og hún hlýðir meira...vonum að það haldi áfram. Hún er orðin svakalega dugleg í sundinu, fer alltaf einu sinni í viku og finnst það frábært.
Það er að þyngjast álagið hjá mér í skólanum, úfff ég veit ekki hvernig þetta verður þegar próflestur hefst Það er ekkert grín að láta þetta ganga upp...en það tekst Það er verið að bæta á okkur allskyns tímum og svo er að aukast grúppuvinnan, sem er alltaf tímafrek. En þetta er ennþá mjög skemmtilegt og spennandi, og það er fyrir öllu.
Það er búið að vera mikið að gera í vinnunni hjá Viðari, karlinn, yfirmaðurinn, í útlöndum og þá er Viðar Chefinn, eins og þeir kalla hann En það verður gott að komast í páskafrí.
Jæja best að fara gera eitthvað að viti...biðjum að heilsa úr sólinni og vorveðrinu
»
28.02.2009 09:00:46 / vvsb
Go´dag!
Héðan er allt gott að frétta, vor í lofti eins og er....en það getur nú breyst....
Bjarki Vignir á afmæli í næstu viku og þá fær hann að bjóða nokkrum krökkum heim úr vöggustofunni. Það er langþráður draumur og hann hlakkar mikið til Það má ekki vera NEINN sykur í þessu afmæli, þannig að maður verður að finna eitthvað annað sniðugt sem þeim finnst gott en hann fær svo afmælisköku um helgina.... Bjarka hefur farið mikið fram í að tala, bæði dönsku og íslensku en er ennþá töluvert betri í íslensku. Hann blandar ekki eins mikið saman en er farin að búa til ný orð þegar honum hentar t.d. þetta skemmtilega orð "halanæse" (halanef), sem er rani á fíl Hann byrjar svo í nýja leikskólanum 16.mars og er mjög spenntur...það verður spennandi að sjá hvernig það gengur.
Viktoría er hress og kát þessa dagana og í betra jafnvægi en hún hefur verið. Ég veit ekki hvort það tengist því að það er orðið betra ástand í bekknum eða bara eitthvað tímabil að ganga yfir, alla vega gleður það alla á heimilinu. Hún er líka bara orðin svo dugleg og stór stúlka, vaknaði í morgun og fór fram og kveikti á barnaefni með bróður sínum og ristaði fyrir þau brauð með osti Ekki slæmt að hafa svona stúlku á bænum, þannig að mamman gat sofið aðeins lengur
Við erum búin að panta til Íslands í sumar, komum 26. júní beint til Akureyrar, á ættamót og verðum svo fyrir norðan í viku og förum svo suður. Síðan er áætluð sumarbústaðaferð, útlega og ég veit ekki hvað. Heimferð er svo 13. júlí. Úfffff hvað ég hlakka til.....
Já ein afnæliskveðja, til hamingju með daginn Jónína, kossar og knús frá okkur öllum!!! Biðjum að heilsa í bili....
»
20.02.2009 14:59:14 / vvsb
Þá er enn og aftur komin helgi...ótrúlegt hvað þessar vikur fljúga....
Það eru allir orðnir hressir eftir veikindi og nú vonum við að það haldist í smá tíma Vöggustofan var "hálf" lokuð í dag...það þýðir að það var starfsdagur en pössun fyrir þau börn sem ekki gátu fengið pössun annarsstaðar, og það var sem sé BV. Við vorum nú svona pínu stressuð af því nú átti sem sé tvær ókunnugar(eða ekki alveg, leikskólastýran) að passa hann og vissum ekkert hvernig það færi í feimna barnið. En hann kom foreldrum sínum á óvart og stóð sig þvílíkt vel Svo þegar ég kom að sækja hann sagði stýran " Det er virkelig et dejligt barn du har!" Hún var alveg ástfangin af honum, hann er svo góður og blíður og ég veit ekki hvað alla vega gott að það var ekki á hinn veginn Það voru bara sex börn og hann og ein stelpa einu "stóru" börnin og þá datt hann auðvitað í mjúkan og góðan leik með henni í dúkkó
'Ég fór á fund í vikunni út af bekknum hjá Viktoríu og það er búið að ákveða að það verði aðstoð inni í bekk fram á vor. Það er bara frábært og vonandi lagast þá þetta ástand. Annars er hún bara sátt við skólann, fyrir utan þessa stríðnisstráka
Nú ætlar húsmóðirin að skella sér á lífið um helgina ekki leiðinlegt það....ætla að fara á þorrblótið í Horsens, reyndar bara á ballið, en við "gömlu" (og þá í merkingunni frá í gamla daga) vinkonurnar ætlum að hittast og borða saman og kjafta aðeins og tjútta svo með "Á móti sól"....alla vega það verður stuð, ég get lofað ykkur því Viddi Kriss verður heima að passa börn á meðan, þar sem hann fór einn í fyrra og ég var heima frekar fúlt en svona er að búa í útlöndum!
Jæja, ætla að fara að þrífa aðeins, Helgi og Habba ætla kíkja á X-faktor með okkur í kvöld, langt síðan við höfum hitt þau.... Eigið góða helgi og hafið það gott......
»
11.02.2009 08:09:11 / vvsb
Sæl og blessuð!
Já enn og aftur veikindi á bænum úff þetta fer að verða ágætt. Nú er það BV sem er veikur, hann er reyndar að hressast en var svakalega slappur í gær, hef sjaldan séð hann svona Það var greinilegt að hann hresstist í nótt...alla vega talaði hann nógu mikið Ótrúlegt hvað hann getur talað þetta barn...og þarf alltaf fulla athygli Um miðja nótt hvar hann að ræða um Íþróttaálfinn og hvernig hann stökk og veit ekki hvað, síðan söng hann "Lille Peter edderkop" og trallaði soldið, foreldrunum til lítillar skemmtunnar Svo kemur alltaf bara "mamma, pabbi, þið hlusta á mig!" he,he, en það er alla vega gott að hann er að hressast.... Viktoría gisti hjá vinkonu sinni í gær og það gekk svona ágætlega, vaknaði kl 5 og vildi fara heim, vakti vinkonu sína og restina af heimilinu ekki viss um að henni verði boðið aftur....he,he, en hún er þá búin að prófa þetta. Það er bara gott að vera komin í skólann aftur og mikið af spennandi fögum þessa önnina. Það er nóg að gera strax frá byrjun, verkefni og hópavinna, þannig að maður þarf að skipuleggja sig vel. Ég er ekki enn búin að fá útúr prófum, sem er frekar pirrandi, en það hlýtur að fara að skila sér bráðum.
Við ætlum að skella okkur til Esbjerg um helgina, í heimsókn til Atla og Selmu og hlakkar okkur mikið til að hitta þau. Það er orðið mjög langt síðan, man hreinlega ekki hvenær það var....við ætlum að gista, þannig að við getum náð að spjalla eitthvað og jafnvel fengið okkur smá rauðvín Jæja, best að fara sinna drengnum sem kallar og kallar, nú er nýjasta æðið púsluspil og þá á að koma sjá hvað hann er flinkur! Hafið það gott og knúsið hvert annað....
»
02.02.2009 15:38:54 / vvsb
Þetta er að verða hálf slöpp bloggsíða...verður að viðurkennast, en það er bara nóg að gera þessa dagana Ég byrja í skólanum á morgun, eftir "frí" frá því 18.des!!! En ég búin að nota tímann vel og læra og hitta grúppuna mína og fara yfir ókláruð verkefni osfrv. Það var frábært að fá tíma til þess. Þetta verður aðeins erfiðari önn sem ég er að fara í núna...dáldið meiri lestur, virkar eins og hin hafi bara verið upphitun En þetta er allt mjög spennandi og það er fyrir öllu. Það er búið að vera frekar rólegt hjá Viðari í janúar en það er að lifna við núna.
Það var frábært að hitta Hörpu og Kidda aftur, áttum skemmtilega helgi saman og krökkunum fannst ekki leiðinlegt að hafa Hörpu sína Það er líka alltaf góð getnaðarvörn fyrir fólk að koma til okkar Þau geta nú stundum verið fyrirferðamiklar verur, þessar elskur! BV er alveg á því hver ræður hér á heimilnu, og það er að sjálfsögðu hann sjálfur! Þegar maður bannar honum eitthvað segir hann bara "NEI, ÉG HÆÐ!(ræð)" Við hin erum nú eiginlega sammála því að maður þurfi að minnsta kosti að vera búin að læra að segja R áður en maður fer að ráða einhverju Við fengum þvílíka himnasendingu frá Kidda og Hörpu, 6 kg af ýsu!! Nammmmm, hann er gjörsamlega geggjaður þessi fiskur og það er fagnað í hvert skipti sem hann er í matinn, ekki slæmt það... Viktoría er farin að bíða eftir vorinu, eins og við öll reyndar, enda búið að vera kalt í vetur. Hún sér sólina og hitann í hyllingum og að þurfa varla að klæða sig til að fara út....ströndin, Legoland, busla útí garði....allt þetta fór hún að ræða um í gær Já manni fer bara að hlakka til líka... Við erum að skoða það að fara í bústað um páskana, veit ekki hvað verður...ef einhver vill með, þá bara slá á þráðinn Well hef þetta ekki lengra í bili, sendum kossa og knús á línuna....
»
21.01.2009 12:24:53 / vvsb
Þá er fjölskyldan búin að næla sér í vetrarkvefið Allir hóstandi og snýtandi en þá er bara að dæla vítamínum í liðið, það segir alla vega mamma mín tengdapabbi Ofurtrú á vítamínum!
Harpa og Kiddi eru að koma um helgina og við hlökkum mikið til. Helgi og Habba ætla kíkja við á föstudagskvöldið, þannig að það fer að verða partýfært Ætli það verði ekki tekin smá X-faktor og svo nokkrir öl...það klikkar alla vega sjaldan Á laugardagskvöldið erum við svo búin að redda okkur pössun, í fyrsta sinn í DK, fáum við stelpu til að koma og passa...úff hvað við erum léleg í þessu....en batnandi fólki er best að lifa.... við ætlum að skella okkur út að borða og svo kannski á eitthvert rölt um bæinn....hlökkum mikið til.... Annars er bara allt gott, var á fundi í gær hjá skólanum hennar VIktoríu og það er búið að ákveða að fá aðstoð inn í bekkinn, svo það sé vinnufriður...það er bara hið besta mál, vonum bara að það hjálpi eitthvað.... BV er víst að verða pínu leiður á þessum "smábörnum" í vöggustofunni, og farin að taka upp á ýmsu sér til dundurs Þær vilja meina það að þetta gerist oft, rétt áður en þau fara í leikskólann, eru hreinlega búin með kvótann þarna og þurfa að fara fá eitthvað meira Hann og félagi hans dunduðu sér við að taka niður ramma með myndum og tóku allar myndirnar úr og dreifðu um allt hvað á maður annað að gera, ef maður er verkefnalaus Já, þetta hlýtur að vera úr föðurfjölskyldunni
well, verð að þjóta....biðjum að heilsa úr sólinni að þessu sinni, kossar og knús á línuna...
»
30.12.2008 14:30:18 / vvsb
Jæja þá er nýtt ár að ganga í garð og eins og venja er, er gott að horfa til baka... Árið 2008 hefur á heildina litið verið gott. Við erum búin að aðlagast vel hérna í Danmörku og líður mjög vel. Okkur finnst tíminn mjög fljótur að líða og trúum því varla að við séum búin að vera hér í eitt og hálft ár
Í janúar byrjaði ég í nýrri vinnu og var mjög spennt yfir því. Það var svo því miður ekki alveg eins og ég hafði átt von á og ég er mjög fegin í dag að hafa hætt þarna. Flest allt var gegn minni eigin sannfæringu og það er ekki gott að vinna þannig. Þannig að ég skráði mig sem "vikar" (afleysingaleikskólakennari ) eftir þetta allt saman og þar öðlaðist ég gríðarlega góða reynslu og fékk góða innsýn í danskt leikskólastarf. Ég var fljótlega bókuð á sama staðinn aftur og aftur(sem var vöggustofa) og líkaði það mjög vel. Þar var ég svo meira og minna fram á haust.
Viðar færði sig úr sveitinni, niður í bæ, í byrjun árs, á hárgreiðslustofu sem er aðeins fyrir karlmenn. Þar líkar honum vel en ég er ekki frá því að karlrembann hafi aukist aðeins eftir þetta Hann er kominn með góðan kúnnahóp og ánægður með samstarfsfélagana.
Bjarki Vignir varð 2 ára í mars og er orðin stór og duglegur drengur. Hann er mikill gaur og dettur ýmislegt í hug sem hann svo framkvæmir af mikilli gleði Þannig að hann heldur foreldrum sínum við efnið Annars á hann líka sínar ljúfu hliðar, þar sem hann er afskaplega lítill í sér og góður við allt og alla. Hann hefur eignast góða vini í leikskólanum og þeir brallla mikið saman, starfsmönnunum til mikillar gleði Honum hefur farið mikið fram við að tala, bæði dönsku og íslensku. Hann blandar þó enn mikið saman en framfarirnar urðu hvað mestar í sumar þegar við vorum á Íslandi. Þannig að við þurfum að vera dugleg að heimsækja landið okkar.
Viktoría varð 6 ára í júní og þá var mikil gleði. Hún hélt veislu fyrir dönsku stelpurnar og líka fyrir íslenska vini og vandamenn. Hún kvaddi leikskólann sinn í júní og byrjaði svo í skóla í ágúst. Það hefur gengið vel og hún er heppin með kennara. Hún fær auka dönskukennslu einu sinni í viku og er mjög sátt við það. Hún er reyndar altalandi á dönsku en það er bara gott að hafa þennan stuðning. Hún hefur eignast mikið af vinkonum og er mikil félagsvera. Viktoría byrjaði á sundnámskeiði í haust og það gengur vel og hún er ótrúlega dugleg og áhugasöm. Hún verður ákveðnari með hverjum deginum og reynir eftir fremsta megni að stjórna heimilinu en þar sem móðirin á bænum er líka frekar ákveðin, tekst það ekki alltaf
Ég skrapp með krakkana til Íslands í júli og það var dásamlegt. Okkur fannst það reyndar heldur stutt, þannig að við stefnum á aðeins lengri ferð næst Við fórum norður, í sundlaugarnar, í bústaðinn, í heimsóknir ofl. og það var bara frábært að hitta alla aftur. Viðar var hins vega heima að vinna á meðan en hann lofar að koma með í næstu ferð!
Ég byrjaði svo í talmeinafræði í Odense í september. Þar líkar mér svakalega vel. Þetta nám er mjög skemmtilegt og krefjandi og ég er búin að kynnast fínum stelpum þarna, sem hjálpar mér mikið. Það hefur tekið pínu á að keyra á milli en við höfum eiginlega ákveðið að flytja ekki að svo stöddu, þar sem krakkarnir eru búnir að koma sér svo vel fyrir og Viðar komin í fína vinnu. Maður leggur ýmislegt á sig fyrir rétta námið Ég fer í eitt próf í janúar en annars eru próf í vor.
Það hefur ekki verið eins mikill gestagangur þetta árið eins og var í byrjun en þó létu sumir sjá sig oftar en einu sinni Við fórum í ferð með Hörpu, Gunnþóri og fjölskyldu til Belgíu í sumar, sem var bara frábært. Síðan hafa nokkrir kíkt við í helgarferðir ofl. Við þökkum þessu góða fólki fyrir komuna og verið velkomin aftur
Við höfum eytt ótal stundum með "Horsensfólkinu"(Helga og Hafdísi) okkar á árinu, farið í sumarbústaðaferðir, matarboð, kaffiboð ofl. Við þökkum að sjálfsögðu fyrir allar þær góðu stundir, það er ómetanlegt að eiga góða vini í útttlöndunum Að lokum viljum við óska öllum gleðilegs árs, með þökk fyrir árið sem er að líða. Takk fyrir allar kveðjurnar á heimasíðuna okkar og á Barnaland. Nú eru hjónaleysin komin á facebook, þannig að það er enn auðveldara að halda sambandi Við vonumst til að sjá ykkur sem fyrst og sem flest á nýju ári og hlökkum til að takast á við nýtt ár í Danmörku. Sendum áramótakossa og knús til allra!
»
22.12.2008 07:34:06 / vvsb
Jæja þá eru flestir komnir í jólafrí...nema Viðar Yndislegt og við ætlum bara að njóta þess að vera í rólegheitum...
Við fórum í jólamatarklúbb á laugardagskvöldið og það var rosa fínt. Viðar komst reyndar að því að hann þolir ekki þennan danska jólamat, fær alltaf illt í magann Vitum ekki hvað það er, kannski blessaða síldin! Halldór Gauti passaði grísina fyrir okkur og það gekk ljómandi vel og þau sjá ekki sólina fyrir honum, sérstaklega BV
Við skreyttum jólatréið í gær og það er nú í minna lagi í ár, enda kreppa en það var ljómandi fínt þegar skrautið var komið á....BV var svona misduglegur að hjálpa, tók af trénu líka, tróð skrautinu inn kertastjaka og fór svo og þvoði smá jólaskraut með klósettburstanum Hann er einstakur þessi elska, það eru engin takmörk fyrir því sem honum dettur í hug Viktoría er nú eiginlega bara orðin eins og fullorðin í samanburði, hún stóð sig mjög vel. Hún fékk hins vegar aðvörunarbréf frá gáttaþefi í dag um að hann vonaði að hann þyrfti ekki að koma með kartöflu í skóinn, svona rétt fyrir jól....ég held að hún sé að hugsa málið.... Já, jólaundirbúningur getur tekið á
Annars hlökkum við bara til jólanna og ætlum að njóta þess að vera saman. Við verðum hjá Helga og Hafdísi á jóladag og Atli og Selma koma til okkar á annann í jólum. Við förum svo til Kolding á áramótunum, þannig að það er ekki eins og við séum ein og yfirgefin um jólin Við komum þó til með að sakna fólksins okkar mikið....
Við ætlum að borða íslenskan saltfisk á þorláksmessukvöld, nammmmm sem kom með Viktoríu, og hlökkum mikið til. Mjög langt síðan við höfum fengið fisk. En við viljum bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið það yndislegt yfir hátíðirnar. ST'ORT jólaknús og kossar til allra
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|